spacer
 

Express ehf.
Authorized Service Contractor for UPS

 
002.jpg
Forsíða
Innflutningur
Útflutningur - Verð
Sendingartími
Rekja sendingu
Tollafgreiðsla
Önnur þjónusta og gjöld
-----------------------------------
Atvinnuumsókn
-----------------------------------
Prenta farmbréf
Prenta Proforma reikning
WorldShip

prenta.jpg

Fréttayfirlit
 
Forsíða arrow Innflutningur

Innflutningur til landsins PDF Prenta Rafpóstur
Með því að slá inn upplýsingar um sendingu er hægt er að finna út sendingarkostnað og sendingartíma hvert sem er í heiminum.  Hægt er að gera þetta með því að fara beint á innflutningsíðuna hér.

Til að tryggja hraða og örugga afgreiðslu þurfa viðeigandi gögn að vera til staðar:

  • Reikningur fyrir viðskiptunum frá sendanda sem sýnir hversu mikið var greitt fyrir vöruna. Ef varan er keypt í gegnum ebay eða aðra slíka uppboðsvefi þá getur í flestum tilfellum verið nóg að áframsenda PayPal kvittun eða kvittun úr heimabanka.
  • Ef um endursendingu er að ræða og innflytjandi óskar eftir niðurfellingu á aðflutningsgjöldum, þarf útflutningsskýrsla (Beiðni um skoðun "E14 eyðublað" staðfest af tolli) að liggja fyrir. 
  • Önnur gögn sem gætu verið málinu viðkomandi ef um sýnishorn, gjöf eða persónulega hluti er að ræða.
  • Bent skal á að innflutningur rafmagnstækja er óheimill ef þau eru ekki merkt með (CE) merkingu. Nánari upplýsingar á heimasíðu Póst- og fjarskiptastofnunar.

Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu okkar í síma 420 0900 (fax 420 0901) eða sendu með tölvupósti upplýsingar um sendinguna á: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   til að forðast tafir á afhendingu.

Helstu gjaldflokkar yfir innflutning eru:
  • Fatnaður - 15% tollur og 25,5% virðisaukaskattur.
  • Skór - 15% tollur og 25,5% virðisaukaskattur.
  • Bílavarahlutir - 7,5% tollur, 15% vörugjöld og 25,5% virðisaukaskattur.
  • Bækur - 7% virðisaukaskattur.
  • Geisladiskar (CD) - 10% tollur og 7% virðisaukaskattur.
  • Mynddiskar (DVD) - 10% tollur og 25,5% virðisaukaskattur.

Af gefnu tilefni er bent á að virðisaukaskattur legst ofaná öll gjöld.

Hægt er að nálgast Reiknivél á vefsíðu Tollstjórans í Reykjavík.
 
spacer
opnunartimi16.jpg

Express ehf. - Authorized Service Contractor for UPS.
Bygging 10, Keflavíkurflugvöllur - Sími 420 0900 - Fax 420 0901 - info@express.is
Hönnun og umsjón: AD
spacer