|
ÞOTAN Gullfaxi, sem var fyrsta þotan sem keypt var hingað til lands, millilenti á Keflavíkurflugvelli í gær á leið sinni vestur um haf, og tók Snorri Snorrason, fyrrverandi flugstjóri, sem flaug þotunni í um áratug, á móti henni þegar hún lenti.
Snorri segir að flugstjórinn um borð hafi tekið sér vel þegar hann sagði honum að hann hefði vermt sæti hans á meðan þotan var í eigu Flugfélags Íslands, og fékk Snorri að tylla sér í flugstjórasætið til að rifja upp gamla tíma á meðan vélin tók eldsneyti.
Vélin, sem er af gerðinni Boeing 727-100, var keypt hingað til lands í júní 1967, og nokkrum árum síðar kom önnur vél sömu gerðar hingað til lands. Snorri flaug Gullfaxa frá árinu 1971, og segir að lítið hafi breyst í henni í dag, utan við það að búið er að skipta um hreyflana.
"Þær reyndust alveg svakalega vel þessar þotur, þrælsterkar. Það eru um fjörutíu ár síðan hún fór að fljúga," segir Snorri. "Flugmennirnir sögðu að ástandið á henni sé fínt, þeir voru mjög ánægðir með hana. Nýju hreyflarnir eru sennilega sparneytnari, og svo eru komin einhver smávegis nýrri stjórntæki fyrir flugmennina, en í aðalatriðum er hún alveg eins."
Gleymir ekki sundtökunum
Snorri verður sposkur á svip þegar hann er spurður hvort hann gæti ekki flogið vélinni í dag. "Ég veit það ekki, menn gleyma nú ekki sundtökunum, en það reynir víst ekki á það."
Gullfaxi var seldur úr landi aftur um 1980. Flutningafyrirtækið UPS, United Parcel Service of America, keypti vélina, sem og aðra af sömu tegund sem Flugfélag Íslands hafði keypt, og hafa vélarnar verið í stanslausri notkun hjá fyrirtækinu síðan.
"Þeir eiga 16 svona flugvélar hjá UPS, þeir sögðu mér það, flugmennirnir," segir Snorri. Hann segir vélarnar reyndar henta vel til farmflutninga, þær séu með stórar hliðardyr sem geri auðvelt að hlaða vélarnar og afferma. Þær voru þó notaðar að mestu í farþegaflutninga hér á landi. Þær tóku 126 farþega í sæti, en var gjarnan skipt í tvennt, og fluttu farþega og farm í einni ferð.
|